Áhrif Firestone EPDM Rubbergard þakdúks á umhverfið
Firestone EPDM RubberGard er samkæmt rannsóknum, umhverfisvænasti þakdúkur sem völ er á.
Þakdúkurinn var borinn saman við helstu þakefni á markaðnum og kom þar fram mikill munur á milli EPDM þakdúks og annarra varðandi áhrifa á umhverfið. Nokkrir þættir sem gera Firestone EPDM að umhverfisvænasta þakdúk sem þú getur fengið.
- Notast er við að endurvinna efni við framleiðslu dúksins.
- Allt framleiðslu ferlið er umhverfis vottað
- Lítil orkuþörf í framleiðsluferli
- Líftími þakdúksins er að lágmarki 50 ár
- Gefur ekki frá sér eiturefni
- Brotnar ekki niður við sólarljós
EITUREFNALAUS
Eini dúkurinn sem gefur ekki frá sér eiturefni:
Þar sem engin eiturefni eru í dúknum, mengar hann ekki regnvatn. Þar af leiðandi hefur það engin áhrif á umhverfi og dýralíf. Vegna þessa eiginleika er hægt að safna regnvatni saman og nota það aftur. Þetta hefur jákvæð áhrif á umhverfi og getur minnkað vatnsnotkun um 40%. Þessir eiginleikar gera þennan dúk einnig að mjög eftirsóknarverðum kosti fyrir fiskeldi.
GÆÐI OG VOTTANIR
Dúkurinn er meðal annars með BREEAM vottun og einnig hafa Greenpeace samtökin sett hann efst á lista hjá sér yfir umhverfisvæna dúka.
Eins má nefna að Firestone framleiða alla algengustu þakdúkana (EPDM, SBS, ABB, PVC og TPO). Firestone mæla með EPDM umfram önnur efni.